Nýskrá  |  Innskráning  |  3. september 2010 
Knattspyrnufélag Breiðholts - 14. febrúar 2008
NFS´08: Jón Heiðar Sveinsson
Höf. Elvar Geir Magnússon

Fullt nafn: Jón Heiðar Sveinsson.

Aldur þinn: 19 ára.

Fæðingarstaður: Reykjavík.

Lýsingarorð sem lýsir þér best: Yndislegafrábær.

Hvar varstu klukkan 12 á hádegi síðasta mánudag? Skólanum.

Hvað borðaðirðu í kvöldmat í gær? Bananasplitt skyr (í tilefni af afmæli mínu sem var einmitt í gær).

Hverju ertu stoltastur af í boltanum? Hafa skorað jafn mörg mörk og Doddi í fyrra.

Mesta axarskapt í boltanum? KR?

Ef þú kæmist á forsíðu DV, fyrir hvað væri það? Veit ekki fyrir hvað það væri en ljóst er að Óli Hrannar væri með mér á myndinni, slæmur félagsskapur.

Hvað skorar Doddi mörg mörk með KB í sumar? 27.

Hver er mesti spaðinn í KB? Eski.

Hvaða leikmaður er líklegastur til að verða forseti Íslands einn daginn? Óli Hrannar, talar ekki um annað.

Klukkan hvað ferðu að sofa á kvöldin? Miðnætti +/- klukkutími er venjan.

Hvaða velli er leiðinlegast að spila á? Gervigrasvöllurinn í Laugardal er ekki í miklu uppáhaldi. En það kemur þó fyrir að þar sé logn, það gerist hinsvegar ekki í Eyjum.

Hver er leiðinlegasti mótherjinn? Úff margir leiðinlegir maður.

Uppáhalds sjónvarpsefni? Enski boltinn kemur á eftir Dr. Phil.

Frægastur í farsímanum þínum? Forseti KB.

Spurning í boði handbolti.is: Top eða bottom? Top.

Ef þú yrðir formaður KSÍ, hvað yrði þitt fyrsta verk? Myndi gera allt til að kvennaboltinn yrði vinsælli.

Hvenær varð Liverpool síðast Englandsmeistari? Hahahahahaha 1989 eða eitthvað!

Ef þú fengir að ráða einu herbergi í nýja Leiknisheimilinu, hvað væri þar inni? Náttúrulega skandall að það sé ekki lyftingaraðstaða. Annars væri ég mest til í lazer-tag sal, Fín hreyfing í óveðrinu.

Einhver sérstök rútína á leikdegi? Tjaa.. ekki nema bara borða passlega löngu fyrir leik og ekkert sem er þungt í maga.

Ertu með loforð fyrir sumarið? Ætla að klobba oftar en ég verð klobbaður.

Áttu sögu af einhverjum Leiknismanni? Ég á margar góðar sögur af Óla Hrannari. Eftirminnilegt þegar við skelltum okkur í sumarbústað nokkrir strákar seinasta sumar. Óli Hrannar fær leyfi frá Gísla Þorkels til að prufukeyra bílinn hans fyrst við vorum í sveitinni. Ég tek að mér ökukennslu og sest fram í. Áður en 10 sekúndur eru liðnar af akstrinum hefur Óli keyrt niður girðingastaur.

Svo eru fleiri virkilega góðar sögur úr þessari sömu ferð sem eru bannaðar yngri en 16 og eldri en 22 svo ég geymi þær.


Dominos Pizza
Íslandsbanki
Hekla
Leiknir á Facebook
Sýn - Besta sætið
Jafnréttisstefna Leiknis
Errea
Fótbolti.net - þar sem boltinn rúllar
Leiknislagið
Carlsbergdeild
  Íþróttafélagið Leiknir - Austurbergi 1 - 111 Reykjavík - s: 557-8050 - fax: 5578025 Getraunanúmer Leiknis er 111  
  © Leiknir.com - Öll efnistaka af vefnum er leyfileg svo framarlega sem uppruna er getið með tengli á leiknir.com