Fara á efnissvæði
IS EN PL
Fréttir | 15.04.2026

Aðalfundur Leiknis 2026

Aðalfundur Íþróttafélagsins Leiknis 2026 verður í Leiknisheimilinu, Austurbergi 1,
miðvikudaginn 29. apríl nk. kl. 19:30.
Dagskrá aðalfundar er skv. lögum félagsins, m.a. flytur formaður skýrslu um sl. starfsár,
ársreikningur verður lagður fram til samþykktar, tillögur teknar til afgreiðslu og kosið
verður í stjórn félagsins. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka virkan þátt í starfi
Leiknis.
Rétt til fundarsetu og kosningarétt hafa allir atkvæðisbærir félagsmenn samkvæmt 2.
mgr. 4. gr. laganna:
Allir iðkendur, skv. iðkendaskrá félagsins, sem náð hafa 18 ára aldri, leikmenn meistaraflokka félagsins og félagsmenn sem greiða árgjald til félagsins skv. ákvörðun stjórnar.
Félagsgjald er 2.500 kr. og hægt verður að greiða það á staðnum eða millifæra á 0537-
26-16902, kt. 690476-0299. Einnig er hægt að senda tölvupóst
á leiknir@leiknir.com með nafni og kennitölu viðkomandi merkt félagsgjald og verður
send valfrjáls krafa í heimabanka viðkomandi.
Kosning til aðalstjórnar fer fram á fundinum þar sem kosið verður um þrjú sæti. Einnig
verða kosnir allt að þrír varamenn í stjórn.
Kjörgengi til stjórnarstarfa hafa allir félagsmenn sem náð hafa 18 ára aldri. Framboð til
stjórnar eða annarra kjörinna embætta félagsins samkvæmt dagskrá aðalfundar skal
skila til kjörnefndar eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund eða í síðasta lagi föstudaginn
24. apríl nk. Netfang kjörnefndar er kjorstjornleiknir@gmail.com.
Tillögur til lagabreytinga og stofnun nýrra deilda skulu tilkynntar með aðalfundarboði og
skulu breytingatillögur lagðar fyrir kjörnefnd félagsins (kjorstjornleiknir@gmail.com) eigi
skemur en fimm dögum fyrir aðalfund eða í síðasta lagi föstudaginn 24. apríl nk. 

Kjörnefnd 2026 (kjorstjornleiknir@gmail.com)
Davíð K. Jónsson
Guðný Sævinsdóttir
Kjartan Örn Þórðarson
-----
Úr lögum félagsins (https://www.leiknir.com/felagid/log-leiknis/)
Dagskrá aðalfundar
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla formanns

Skýrsla gjaldkera aðalstjórnar, kynning og umræður um endurskoðaða reikninga
Lagabreytingar og önnur löglega framborin mál
Kosning formanns aðalstjórnar
Kosning aðalstjórnar félagsins og varamanna í stjórn.
Kosning löggilts endurskoðanda félagsins og tveggja skoðunarmanna
Önnur mál
4.gr. Félagsmenn(eiga rétt setu á aðalfundi)
Félagsmenn í félaginu eru allir iðkendur sem standa skil á æfingagjöldum til
félagsins sem og foreldrar þeirra, leikmenn sem spila með 2. flokki og
meistaraflokkum félagsins, þjálfarar og aðrir starfsmenn félagsins. Ennfremur allir
þeir sem greiða árgjald til félagsins og eiga ársmiða á heimaleiki meistaraflokka
Leiknis.
Atkvæðisbærir á fundum félagsins skulu allir iðkendur, skv. iðkendaskrá
félagsins, sem hafa náð 18 ára aldri, leikmenn meistarflokka félagsins og
félagsmenn sem greiða árgjald til félagsins skv. ákvörðun stjórnar. Einnig sitjandi
stjórn, formaður unglingaráðs og formaður meistaraflokksráðs.
Félagsgjald skal ákveðið á aðalfundi og innheimt af aðalstjórn.