Fara á efnissvæði
IS EN PL
Uefa
Fréttir | 04.06.2021

EM leikur Leiknis 2021 | Taktu þátt!

Nú styttist í Evrópukeppnina í knattspyrnu og því ætlum við í Leikni að vera með smá leik í kringum keppnina eins og á EM og HM frá árinu 2004.

Það kostar 3.000 kr. að vera með í leiknum en hann er til styrktar mfl. Leiknis þannig að 1.000 kr. af fjárhæðinni rennur beint til meistaraflokks liðsins, 1.100 kr. af henni rennur til stigahæsta aðilans í lok keppninnar, 600 kr. til næst hæsta aðila keppninnar og 300 kr. rennur til þess aðila sem lendir í þriðja sæti.

Leikurinn er mjög einfaldur, en það eina sem þarf að gera er að vista skjalið til sín (hægri smella á það og velja Save Target As…), fylla það út og senda á leiknirEM2021@gmail.com þegar því er lokið.

Aðeins þarf að fylla inn í gulu reitina í skjalinu og þá uppfærist staðan í riðlunum sjálfkrafa. Þegar þau úrslit eru komin inn, þá sést hvaða lið mætast í 16 liða úrslitum og þá þarf að fylla inn þau úrslit o.s.frv. þar til Evrópumeistararnir eru fundnir.

Hver og einn má skila eins mörgum ágiskunum og hann vill svo lengi sem hann borgar þátttökugjaldið fyrir hverja úrlausn.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SKJALIÐ

Þátttakan hefur verið góð undanfarin ár og vona ég að það haldi áfram fyrir þetta mót.

Fólk getur búið til aukakeppnir í kringum þetta, hópað sig saman og stigahæsti aðilinn í hópnum fær einhver verðlaun…þetta er bara hugmynd sem menn geta útfært sjálfir. Auðvelt er að halda utan um svona aukakeppnir í Excel-skjalinu sem búið er að búa til með úrlausnum hvers og eins.

Skilafrestur er til kl 21:00 þriðjudaginn 8. júní nk. (engar undantekningar!)

Endilega kynnið ykkur allar reglur leiksins, sem er að finna í skjalinu

Haukur Gunnarsson