
Grindavík heimsækir Breiðholtið
Nú eru fjórar umferðir búnar af Lengjudeildinni og Leiknir leitar enn að fyrsta sigri sumarsins. Í kvöld fá strákarnir tækifæri til þess þegar Grindavík mætir í heimsókn á Domusnovavöllinn í Efra-Breiðholti. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Dómari leiksins verður Brynjar Þór Elvarsson. Hægt er að kaupa miða á Stubbi, hérna er tengill á miðakaupin.
Grindavík er sem stendur í 9. sæti deildarinnar með 4 stig eftir einn sigur, eitt jafntefli og tvö töp. Leikir Grindavíkur hafa verið markamiklir og fjörugir sem sést á því að markatala Grindavíkur eftir 4 leiki er 11:11. Breki Þór Hermannsson hefur skorað 4 mörk á tímabilinu, þeir Adam Árni Róbertsson, Ármann Ingi Finnbogason og Ingi Þór Sigurðsson hafa skorað 2 mörk hver en eitt marka Grindavíkur var sjálfsmark frá Fjölni.
Sigur Grindavíkur kom í þriðju umferð, á útivelli gegn toppliði Þróttar. Jafnteflið var heimaleikur gegn Fjölni í 2. umferð en Grindavík tapaði fyrir Selfoss í fyrstu umferð og núna síðast gegn Þór á heimavelli.
Leiknir er í neðsta sæti deildarinnar með 1 stig eftir fjóra leiki og markatöluna 2:12. Seinasti leikur var skellur gegn Keflavík og það er alveg ljóst að þjálfarateymið, leikmennirnir og stuðningsfólk mun vilja kvitta fyrir þann leik með alvöru frammistöðu í kvöld.
Þessum liðum var spáð mjög svipuðu gengi fyrir tímabilið. Í spá þjálfara og fyrirliða deildarinnar var Leikni spáð 9. sæti en Grindavík 8. sæti. Aðeins einu stigi munaði á liðunum í spánni.
Leiknir hefur 17 sinnum áður mætt Grindavík í meistaraflokki karla. Leiknir á tvo sigra í þeim leikjum, Grindavík hefur unnið 10 leiki og 5 sinnum enduðu leikar með jafntefli. Markatalan í leikjunum er 23:41.
Leggjumst nú á eitt og hjálpum Leiknisliðinu okkar að finna stuðið sitt.
Áfram Leiknir!