Fara á efnissvæði
IS EN PL
Gústi Kemur Heim
Fréttir | 03.06.2025

Gústi kemur heim

Leiknir Reykjavík tilkynnir að félagið hafi í dag gengið frá samningi við Ágúst Gylfason um að taka við liði félagsins í Lengjudeildinni. Ágúst kemur í Breiðholtið og skrifar undir samning til loka þessa tímabils. Ágúst er mjög reynslumikill þjálfari sem hefur komið víða við og náð góðum árangri með lið sín og bindur stjórn Leiknis miklar vonir við störf hans og telur hann rétta manninn fyrir liðið á þessum tímapunkti.

Ágúst segist vera virkilega ánægður með að taka þessa áskorun með Leikni og sérstaklega í ljósi þess að hann er sjálfur gamall Leiknismaður.