Fara á efnissvæði
IS EN PL
Keflavik Leiknir2024
Fréttir | 23.05.2025

Leiknir heldur til Keflavíkur

Eftir jafntefli í fyrstu umferðinni töpuðu Leiknismenn tveimur heimaleikjum í röð, gegn Þór og HK. Nú er komið að útileik gegn toppliðinu í Keflavík. Leikur hefst í kvöld, föstudaginn 23. maí klukkan 19:15. Dómari verður Gunnar Oddur Hafliðason. Hér er hægt að kaupa miða á Stubbi. Það spáir ágætis veðri í kvöld og við vonum að sem flest ykkar sjáið sér fært að mæta á þennan strembna útivöll til að hvetja liðið áfram.

Keflavík hefur byrjað tímabilið vel og er á toppi deildarinnar eftir útisigra gegn Fjölni og Þór. Á milli þeirra leikja tapaði Keflavík þó á heimavelli gegn Þrótturum. Keflavík hefur skorað 7 mörk í deildinni, aðeins Grindavík hefur skorað fleiri. En liðið hefur fengið á sig fjögur mörk.

Gabríel Aron Sævarsson, fæddur 2006, er markahæstur Keflavíkurmanna með 3 mörk. Nacho Heras, Muhamed Alghoul og Sindri Snær Magnússon hafa skorað eitt mark hver og eitt marka Keflavíkur var sjálfsmark.

Á síðasta tímabili endaði Keflavík í öðru sæti deildarinnar, einu stigi á eftir ÍBV. Í umspilinu um að komast upp í Bestu deildina vann Keflavík undanúrslitaeinvígið gegn ÍR mjög örugglega en tapaði svo 0:1 í úrslitaleik umspilsins gegn Aftureldingu. Fyrir þetta tímabil spáðu þjálfarar og fyrirliðar liðanna í Lengjudeildinni að Keflavík myndi aftur enda í 2. sæti deildarinnar.

Okkar menn eru í neðsta sæti deildarinnar eins og er með 1 stig úr 3 leikjum og markatöluna 2:6. Það er okkar trú að stigasöfnun og markaskorun fari upp á við mjög fljótlega. Axel Freyr Harðarson og Djorde Vladisavljevic hafa skorað mörk Leiknis til þessa.

Leiknir og Keflavík hafa mæst 24 sinnum í meistaraflokki karla. Leiknir á sjö sigra að baki, Keflavík hefur unnið 12 leiki og 5 sinnum hafa leikar endað með jafntefli. Markatalan í þessum 24 leikjum er 29:50.

 

Nú er lag til að nýta þetta föstudagskvöld í að spyrna sér af botninum.

Áfram Leiknir!

 

Minnum á árskortin sem er hægt að kaupa hérna.

Vefverslun Leiknis er hérna.