
Leiknir selur Stefan Bilic til Vozdovac
Sóknarmaðurinn Stefan Bilic hefur verið seldur til serbneska félagsins Vozdovac í Belgrad.
Stefan er 18 ára gamall og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki á síðasta ári, þar sem hann kom við sögu í sjö leikjum í Lengjudeildinni.
Leiknir óskar þessum unga leikmanni góðs gengis hjá Vozdovac.