
Leiknisstelpur kátar eftir vel heppnað mót í Vestmannaeyjum!
Leiknir átti svo sannarlega frábæra fulltrúa á TM mótinu í Vestmannaeyjum sem haldið var 12.-14. júní sl.
Félagið er ákaflega stolt af þessum flottu stelpum sem voru til sóma bæði innan vallar og utan. Í fyrra fóru stelpur frá Leikni á þetta mót í fyrsta sinn í langan tíma. Þá voru 10 stúlkur í hópnum og eitt lið. Í þetta sinn fóru 16 stelpur sem spiluðu í tveimur liðum og erum við stolt af þessari aukningu. Því miður komust ekki allar stelpurnar í flokknum með af margskonar ástæðum en við erum ánægð með þann árangur sem hefur náðst í því að byggja upp kvennaboltann hjá Leikni síðustu misseri en á þremur árum hefur fjöldinn farið úr 0 í 25!
Stúlkurnar sem æfa hjá Leikni eru allar úr hverfinu okkar og njóta handleiðslu frábærs þjálfara og eru vel studdar af samstilltum hópi foreldra.
Við þurfum og ætlum að gera ennþá betur og viljum fá fleiri stelpur til liðs við okkur.
Á morgun, miðvikudag, tökum við vel á móti öllum stelpum 6-10 ára sem vilja prófa fótboltaæfingu.
Æfingin er kl. 16:15.
Það eru framkvæmdir á gervigrasinu okkar og æfingin fer fram á stóra æfingagrasinu sunnan megin við húsið.
5. flokkur æfir á miðvikudag og fimmtudag í þessari viku kl. 13 og allar stelpur fæddar 2013-2014 eru velkomnar á þær æfingar.
Minnum líka á knattspyrnuskóla Leiknis.
Áfram Leiknir!