Nágrannaslagur í Árbænum
Eftir strembna byrjun á tímabilinu er komið að sjötta deildarleik Leiknis í ár. Þótt hann sé útileikur þá er stutt að fara fyrir okkur á völlinn því andstæðingurinn í þessum leik eru nágrannar okkar í Fylki. Það er Helgi Mikael Jónasson sem dæmir þennan nágrannaslag og hann flautar leikinn á klukkan 19:15 miðvikudaginn 4. júní. Miðasala er sem fyrr á Stubbi, hér má nálgast miða.
Leiknir er í 12. sæti deildarinnar með eitt stig eftir fimm leiki og markatöluna 4:18. Fylkir er í níunda sætinu með fimm stig úr fimm leikjum og markatöluna 6:8.
Fylkir gerði 1:1 jafntefli gegn Njarðvík á útivelli í fyrstu umferð, sigraði Selfoss 2:0 á heimavelli í annarri umferð og gerði aftur 1:1 jafntefli á útivelli í 3. umferð, í það skiptið gegn Fjölni. Síðustu tveimur leikjum hafa Fylkismenn tapað, fyrst gegn Þrótti í Árbænum og nú síðast á Akureyri gegn Þór.
Pablo Aguilera Simon hefur skorað tvö mörk fyrir Fylki en Ásgeir Eyþórsson, Benedikt Daríus Garðarsson, Orri SVeinn Segatta og Tumi Fannar Gunnarsson hafa skorað eitt mark hver. Fyrir tímabilið var Fylki spáð sigri í deildinni af þjálfurum og fyrirliðum deildarinnar.
Leiknir hefur 18 sinnum mætti Fylki í sögu félaganna. Átta sinnum hafa leikar endað með Leiknissigri, Fylkir hefur unnið sex leiki og fjórir leikir hafa endað með jafntefli. Markatalan í leikjunum er 25:26. Síðast mættust liðin í Reykjavíkurmótinu í lok janúar 2024, sá leikur endaði með 5:2 sigri Leiknis. Síðast þegar þessi lið voru saman í deild var það í efstu deildinni sumarið 2021. Þá vann Leiknir heimaleikinn 3:0 en leikurinn í Árbænum endaði með markalausu jafntefli.
Við hvetjum Leiknisfólk til að skella sér á völlinn og hvetja strákana.
Áfram Leiknir!