Fara á efnissvæði
IS EN PL
Grindavikheima2024
Fréttir | 15.06.2024

Tap gegn Grindavík

Leiknir 2:3 Grindavík

Domusnovavöllurinn í Breiðholti, laugardaginn 15. júní 2024.

7. umferð í Lengjudeildinni. Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason.

Mörk Leiknis:

25' - Shkelzen Veseli

88' - Róbert Quental Árnason

 

Fyrir leikinn gegn Grindavík tilkynnti Leiknir á samfélagsmiðlumÓlafur Hrannar Kristjánsson hefði verið ráðinn inn í þjálfarateymi Leiknis. Þar kemur mikil reynsla og stórt Leiknishjarta inn í hópinn. Hann var Garðari Gunnari Ásgeirssyni til halds og trausts í þessum leik en Garðar stýrir liðinu tímabundið á meðan leit að næsta þjálfara stendur yfir.

Einar Karl Ingvarsson kom Grindavík yfir á 5. mínútu en Shkelzen Veseli jafnaði í 1:1 á 22. mínútu og það var jafnt í hálfleik. Dennis Nieblas Moreno kom gestunum yfir á 59. mínútu. Á 84. mínútu jók Dagur Ingi Hammer Gunnarsson forystu gestanna í 1:3. Róbert Quental Árnason náði að minnka muninn á 88. mínútu en þrátt fyrir þunga sókn Leiknis í lokin þá datt jöfnunarmarkið ekki inn í þetta skiptið.

Leiknir er áfram í 12. sæti deildarinnar og á næst útileik gegn Þór á Akureyri.

 

Leikurinn í heild á YouTube-síðu Lengjudeildarinnar

Umfjöllun Fótbolta.net um leikinn

 

Byrjunarlið Leiknis gegn Grindavík:

1 - Viktor Freyr Sigurðsson

4 - Patryk Hryniewicki 

5 - Daði Bærings Halldórsson (fyrirliði)

6 - Andi Hoti

7 - Róbert Quental Árnason

8 - Sindri Björnsson

10 - Shkelzen Veseli

19 - Jón Hrafn Barkarson

20 - Hjalti Sigurðsson

23 - Arnór Ingi Kristinsson

44 - Aron Einarsson

 

Varamenn:

92 - Sigurður Gunnar Jónsson (inn á 37' fyrir Hjalta)

22 - Þorsteinn Emil Jónsson (inn á 71' fyrir Aron)

67 - Omar Sowe (inn á 71' fyrir Shkelzen)

80 - Karan Gurung (inn á 71' fyrir Jón Hrafn)

88 - Stefan Bilic (inn á 83' fyrir Sindra)

 

 

Mynd: Haukur Gunnarsson fyrir Fótbolta.net